Óvissa um afkomu Icelandair vegna kórónuveirunnar

Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair Group. Óvissa er um horfur …
Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair Group. Óvissa er um horfur í rekstri flugfélagsins vegna kórónuveirunnar. mbl.is/Kristinn Magnússon

Afkomuspá Icelandair Group, sem gefin var út 6. febrúar, er ekki lengur í gildi. Stjórnendur félagsins telja ekki mögulegt að gefa út áreiðanlega afkomuspá á þessum tímapunkti, vegna óvissu um hvaða áhrif kórónuveiran mun hafa á starfsemi Icelandair og annarra flugfélaga.

Flugfélagið segir í tilkynningu að ljóst sé að spurn eftir ferðalögum á ákveðin svæði í heiminum sé þegar að dragast saman vegna þeirra aðgerða sem gripið hafi verið til um allan heim vegna útbreiðslu kórónuveirunnar.

„Of snemmt er að segja til um möguleg áhrif þessarar þróunar á starfsemi Icelandair Group en þessi staða skapar aukna óvissu þegar kemur að áætlaðri rekstrarniðurstöðu félagsins fyrir árið 2020,“ segir í tilkynningu flugfélagsins.

Sviðsmyndagreiningar standa yfir

Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair Group, segir að útbreiðsla veirunnar og viðbrögð við henni séu farin að hafa áhrif á ferðahegðun á markaðssvæði Icelandair, sem flýgur frá Íslandi til Evrópu og Norður-Ameríku.

„Vegna þess erum við að greina hugsanlegar sviðsmyndir og móta aðgerðir til að draga úr þeim áhrifum sem þessi þróun kann að hafa á starfsemi félagsins. Öll áhersla verður lögð á að lágmarka áhrif á viðskiptavini okkar en ef mótvægisaðgerðir koma til með að hafa áhrif á flugáætlun, munum við upplýsa um það um leið og slíkar ákvarðanir liggja fyrir. Ég legg áherslu á að öryggi og velferð farþega og starfsfólks okkar er ávallt í fyrirrúmi,“ er haft eftir forstjóranum í tilkynningu.

Ýmsar ráðstafanir

Hann segir Icelandair hafa gripið til ýmissa ráðstafana og aukið viðbragðsgetu innan félagsins til að bregðast við útbreiðslu kórónuveirunnar. „Félagið fylgist grannt með þróun mála, er í reglulegum samskiptum við sóttvarnalækni og landlæknisembættið og fylgir leiðbeiningum og verkferlum embættisins á hverjum tíma,“ segir Bogi.

Icelandair er að auki í nánu samstarfi við Medaire, sem er alþjóðleg læknaþjónusta sem sérhæfir sig í lækningum og forvörnum um borð í flugvélum og veitir ráðgjöf í rauntíma þegar veikindi koma upp og ef grunur vaknar um smit um borð.

„Áhersla er lögð á reglulega upplýsingagjöf til áhafna og farþega sem og aukna vöktun. Einnig hefur félagið farið yfir og eftir tilvikum uppfært verkferla og viðbragðsáætlanir í samvinnu við viðbragðsaðila hér á landi. Þá hefur verið gripið til varúðarráðstafana með viðbótarbúnaði um borð í flugvélum Icelandair, svo sem sótthreinsiefni, andlitsgrímum og hönskum,“ segir Bogi.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert