163 tilfelli kórónuveirunnar greind

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir greindi frá nýjustu tíðindum af staðfestum smitum …
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir greindi frá nýjustu tíðindum af staðfestum smitum kórónuveirunnar hér á landi á blaðamannafundi í dag. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Alls hafa 163 til­felli kór­ónu­veirunn­ar verið greind hér á landi. Um 1.800 sýni hafa verið tek­in á veiru- og sýklafræðideild Landspítalans. Þrír hafa verið lagðir inn á Landspítala vegna veirunnar, þar af er einn á gjörgæslu. Sjúklingarnir eru á sextugs- og sjötugsaldri. Tveir hafa verið útskrifaðir sem áður voru innlagðir. 

Þetta kom fram í máli Þórólfs Guðnasonar sóttvarnalæknis á blaðamanna­fundi almannavarna í Skóg­ar­hlíð rétt í þessu. Aðeins tvö ný sýni hafa því greinst síðan í gærkvöld. Á þriðja þúsund eru í sóttkví. 

Flest sýnanna tengjast skíðasvæðum í Evrópu en 23% tilfella eru með óþekkta smitleið. Þórólfur vekur athygli á því að rúmlega helmingur þeirra sem hafa greinst hafa verið í sóttkví. Hann segir það benda til að aðgerðirnar sem almannavarnir hafa ráðist í séu að skila árangri þar sem þessir einstaklingar hefðu annars verið úti í samfélaginu og mögulega smitað.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert