Lögreglan biður fólk að hætta við fyrirhuguð afbrot

Nýjum vandamálum fylgja nýjar lausnir. Mynd úr safni.
Nýjum vandamálum fylgja nýjar lausnir. Mynd úr safni. mbl/Arnþór

Lögreglan á Suðurnesjum hefur sent frá sér tilkynningu þar sem fólk sem hyggst brjóta af sér er vinsamlegast beðið um að hætta við þau áform í bili. Ástæðan fyrir þessari formlegu beiðni er ástandið sem myndast hefur vegna kórónuveirufaraldursins.

Þetta kemur fram í stöðufærslu á Facebook-síðu Lögreglunnar á Suðurnesjum. Þar er því einnig beint til almenning að fara eftir tillögu Víðis Reynissonar um að eiga veirulausan klukkutíma milli klukkan 20:00 og 21:00 í kvöld.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Stöndum saman

Við hjá Árvakri viljum vekja athygli á því sem vel er gert á þessum erfiðu tímum. Ef þú ert með góða sögu af fyrirtækjum og einstaklingum sem eru að gera gott, sendu okkur ábendingu á netfangið stondumsaman@mbl.is.

Stöndum saman

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert