Doktorsvörn í kyrrþey

Sr. Bjarni Karlsson.
Sr. Bjarni Karlsson.

Sr. Bjarni Karlsson er að verja doktorsritgerð við guðfræði- og trúarbragðadeild Háskóla Íslands og hófst vörnin klukkan 9. Vegna kórónuveirufaraldursins er fámennt við athöfnina sjálfa þar sem hún var lokuð gestum en henni er streymt á netinu og geta því fleiri en endranær fylgst með doktorsvörninni sem fer fram í hátíðarsal Háskóla Íslands.

Ritgerðin ber heitið: Vistkerfisvandi og fátækt. Einkenni lífvænlegrar heimsmyndar, mannskilnings og fátæktarhugtaks í fjölmenningarsamfélagi síðnútímans.Ritgerðin er á sviði siðfræðinnar, segir á vef Þjóðkirkjunnar.

„Ritgerðin dregur fram og gagnrýnir ýmsa ágalla nútímalegrar hugsunar um fátækt, heiminn, og stöðu mannsins í honum. Borin er saman hnattræn orðræða veraldlegra og trúarlegra aðila og rök færð fyrir samskilningi um gildi þess að leggja niður eindahyggju og mannmiðlægni en taka upp tengslahyggju og lífmiðlægni í heimsmenningunni.

Með samanburði á völdum stefnuskjölum eru færð rök fyrir því að engin neikvæð spenna ríki í hnattrænni orðræðu milli veraldlegrar og kristinnar umfjöllunar um vistkerfisvanda og fátækt. Orðræða S.Þ., hefur snúist frá mannmiðlægni til lífmiðlægni á umliðnum fimmtíu árum. Höfundur heldur því fram að guðmiðlæg nálgun kristninnar geti falið í sér þá lífmiðlægu og hlúð að henni í menningunni, m.a. með því að líta á vistkerfið sem líkama Guðs.

Spurt er: Hver eru meginatriði í siðfræði þar sem fátækt er forðað og almannahagur er leiðarljós?

Tillögur að svari eru lagðar fram um leið og gildi hins lýðræðislega samtals er undirstrikað. Í stað einhliða áherslu á lög og reglur í meintu hlutlausu almannarými nútímasamfélagsins er mælt með lýðræðislegri og margþættri samræðu þar sem ólíkar hefðir og menningarheimar mætist og haldi hvert öðru ábyrgu í gagnkvæmri hlustun og virðingu.

Andmælendur við vörnina eru dr. Jón Ásgeir Kalmansson, aðjunkt við menntavísindasvið Háskóla Íslands og dr. Sigríður Guðmarsdóttir, dósent við VID vitenskaplige høgskole í Noregi.

Doktorsritgerðin var unnin undir leiðsögn dr. Sólveigar Önnu Bóasdóttur, prófessors í guðfræðilegri siðfræði við Háskóla Íslands. Aðrir í doktorsnefnd voru dr. Kolbeinn Hólmar Stefánsson, sérfræðingur á Hagstofu Íslands, og dr. Ólafur Páll Jónsson, prófessor í heimspeki við Háskóla Íslands.

Dr. Rúnar Már Þorsteinsson, forseti Guðfræði- og trúarbragðafræðideildar, stjórnar athöfninni og er með Bjarna í salnum.

Sr. Bjarni er fæddur 6. ágúst 1963 og lauk hann embættisprófi í guðfræði frá Háskóla Íslands 1990 og meistaragráðu í guðfræðilegri siðfræði 2007 frá sama skóla. Hann starfaði sem sóknarprestur í Vestmannaeyjum og Laugarneskirkju í Reykjavík árin 1991- 2014 en rekur nú eigin sálgæslustofu í Reykjavík.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert