Finna þarf leið fyrir borgarlínu

Þannig hugsa verkfræðingar Vegagerðarinnar sér að gatnamót Bústaðavegar og Reykjanesbrautar …
Þannig hugsa verkfræðingar Vegagerðarinnar sér að gatnamót Bústaðavegar og Reykjanesbrautar gætu litið út. Hér er lausn með brú yfir Reykjanesbraut. Fleiri lausnir hafa verið útfærðar, meðal annars með göngum undir Reykjanesbraut. Nú þarf að koma borgarlínunni fyrir. Tölvuteikning/Vegagerðin

Verkefnahópur frá Vegagerðinni og Reykjavíkurborg er að hefja vinnu við greiningar og útfærslur á gatnamótum Reykjanesbrautar/Bústaðavegar sem miða að því að leysa flæði bíla og almenningssamgangna. Þetta segir G. Pétur Matthíasson, upplýsingafulltrúi Vegagerðarinnar í Morgunblaðinu í dag.

Fram kom í fréttum árið 2017 að Vegagerðin hefði látið vinna útfærslur á mislægum gatnamótum á þessum fjölfarna stað. Síðan hefur sú breyting orðið, að samkvæmt samgöngusáttmála ríkis og borgar er gert ráð fyrir að hin nýja borgarlína aki frá Mjódd inn í Vogabyggð. Því blasir það verkefni við að finna leið fyrir borgarlínu almenningssamgangna um gatnamótin. Þetta getur orðið talsvert snúið úrlausnarefni vegna nálægðarinnar við Elliðaár.

„Þegar niðurstaða vinnu verkefnahópsins liggur fyrir verður farið í for- og verkhönnun. Tímasetning framkvæmda mun síðan taka mið af hönnunarferlinu sem er fram undan og því skipulagferli sem það kallar á,“ segir G. Pétur.

Um margra áratuga skeið hefur verið kallað eftir úrbótum á gatnamótum Reykjanesbrautar/Bústaðavegar.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert