ASÍ krefst hækkunar atvinnuleysisbóta

Alþýðusamband Íslands leggur ríka áherslu á að atvinnuleysisbætur verði þegar …
Alþýðusamband Íslands leggur ríka áherslu á að atvinnuleysisbætur verði þegar í stað hækkaðar og tekjutengda tímabilið lengt. mbl.is/Árni Sæberg

Alþýðusamband Ísland krefst hækkunar atvinnuleysisbóta, meðal annars með því að grunnatvinnuleysisbætur verði hækkaðar um 28.740 krónur og að tekjutengda tímabilið verði lengt. 

Í tilkynningu frá sambandinu segir að við þær aðstæður sem nú eru uppi á vinnumarkaði og fyrirsjáanlegar eru á næstu misserum er nauðsynlegt að gera breytingar til að forða fólki sem misst hefur vinnuna frá enn verri áföllum en felast í atvinnumissi og því tekjutapi sem honum fylgir. 

Niðurstöður vinnu­markaðsrann­sókn­ar Hagstofu Íslands í apríl gef­ur skýr­a mynd af þeirri dæma­lausu stöðu sem upp kom á vinnu­markaði í kór­ónu­veirufar­aldr­in­um en í ljós kem­ur að alls voru 13.700 ein­stak­ling­ar án vinnu og í at­vinnu­leit í apríl sem jafn­gild­ir 7% at­vinnu­leysi.

Alþýðusambandið hefur um nokkurra missera skeið lagt áherslu á að lögin um atvinnuleysistryggingar verði endurskoðuð í heild sinni. Alþýðusambandið hefur jafnframt lagt ríka áherslu á að atvinnuleysisbætur verði þegar í stað hækkaðar og tekjutengda tímabilið lengt.

Tillaga Alþýðusambandsins felst í eftirfarandi fjórum þáttum: 

  • Grunnatvinnuleysisbætur verði sem svarar 95% af tekjutryggingu m.v. fullt starf. Sú fjárhæð er í dag kr. 318.250 (þ.e. um 9,9% frá núverandi fjárhæð). Þá verði greiðsla með hverju barni á framfæri yngra en 18 ára hlutfallslega sú sama og í dag.
  • Tekjutengdar atvinnuleysisbætur nemi sem næst 70% af meðaltali heildarlauna á vinnumarkaði. Sú fjárhæð er í dag kr. 529.381.
  • Þá verði dregið úr tekjutengingu þannig að tekjur upp að dagvinnutekjutryggingu skerði ekki tekjutengdar bætur. Sú fjárhæð er í dag kr. 335.000.
  • Tímabil tekjutengdra atvinnuleysisbóta verði lengt tímabundið úr þremur mánuðum að hámarki í sex mánuði.

Nú eru grunnbætur úr atvinnuleysistryggingasjóði m.v. fullt starf kr. 289.510 á mánuði (auk þess sem greidd er lág fjárhæð með hverju barni á framfæri yngra en 18 ára). Þá eru tekjutengdar bætur að hámarki kr. 456.404 á mánuði, en þó aldrei hærri en 70% af meðaltali heildarlauna á viðmiðunartímabilinu. Tekjutengdar atvinnuleysisbætur eru lengst greiddar í þrjá mánuði, en þó ekki fyrstu tvær vikur í atvinnuleysi.

„Um er að ræða hóflegar breytingar sem eru einfaldar og hægt er að hrinda strax í framkvæmd en með því fororði þó að heildarendurskoðun laganna fari fram og þá verði fjárhæðir atvinnuleysisbóta og annar stuðningur úr atvinnuleysistryggingasjóði tekinn til gagngerrar skoðunar með það að markmiði að forða fólki frá tekjufalli,“ segir í tilkynningu ASÍ.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert