Jarðskjálfti 5 að stærð á Reykjanesskaga

Skjálftinn varð á Reykjanesskaga á tólfta tímanum í kvöld.
Skjálftinn varð á Reykjanesskaga á tólfta tímanum í kvöld. mbl.is/Sigurður Bogi

Jarðskjálfti sem var 4,5 að stærð varð á Reykjanesskaga klukkan 23:36, samkvæmt Veðurstofu Íslands. Stærð skjálftans er nú staðfest. 

Skjálftinn átti upp­tök sín 0,9 km suðvestur af Fagra­dals­fjalli á Reykja­nesskaga. Skjálft­inn fannst vel á höfuðborg­ar­svæðinu en síminn hefur ekki stoppað hjá Veðurstofa Íslands vegna tilkynninga frá fólki sem fann fyrir skjálftanum. 

Skjálfti sem var 3,1 að stærð fylgdi í kjölfar þess stóra. Hann varð klukkan 23:46 1,5 kílómetra norðaustur af Fagradalsfjalli.

Sex aðrir skjálftar stærri en 3 hafa fylgt í kjölfarið.

Áður hafði komið fram að stærð skjálftans væri 4,5 stig, en Veðurstofan hefur nú uppfært tölur sínar eftir nánari greiningu. Er skjálftinn nú talinn hafa verið 5 stig að stærð.

Fréttin hefur verið uppfærð.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert