Brugðist við með skýrum og fumlausum hætti

Þetta skrifar Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra á Facebook.
Þetta skrifar Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra á Facebook. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Vel var gætt að sóttvarnaráðstöfunum bæði á vinnufundi ríkisstjórnarinnar og þegar hún snæddi kvöldverð á Hótel Rangá síðastliðinn þriðjudag, en fjöldi smita á hótelinu sýnir hve skæð veiran er.

Þetta skrifar Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra á Facebook, en hún og átta aðrir ráðherrar ríkisstjórnarinnar þurfa að fara í tvöfalda sýnatöku og smitgát vegna smita sem upp komu á Hótel Rangá.

Sóttvarnayfirvöld hafa brugðist við með skýrum og fumlausum hætti en fjöldamargir eru nú ýmist á leið í sóttkví eða skimun samkvæmt vinnureglum heilbrigðisyfirvalda. Vona að öllum batni fljótt sem hafa nú greinst með smit og þetta fari allt vel.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert