Gæti haft „hrollvekjandi afleiðingar“

Julian Assange, stofnandi Wikileaks.
Julian Assange, stofnandi Wikileaks. AFP

Magnús Davíð Norðdahl, formaður Íslandsdeildar Amnesty International, og Anna Lúðvíksdóttir, framkvæmdastjóri deildarinnar, afhentu í dag fulltrúum bandaríska sendiráðsins á Íslandi undirskriftir 3.581 einstaklinga sem krefjast þess að Bandaríkin felli niður ákærur á hendur Julian Assange en hann er í haldi í Bretlandi á grundvelli framsalsbeiðni Bandaríkjanna.

 Julian Assange, sem er stofnandi Wikileaks, gæti átt á hættu varð­haldsvist við aðstæður sem teljast til pynd­inga og annarrar illrar meðferðar, t.d. einangrunarvist. Í ljósi háværrar opin­berrar umræðu embætt­is­fólks í efstu lögum stjórn­sýsl­unnar gegn honum er mikil hætta á ósann­gjörnum rétt­ar­höldum sem grefur alvar­lega undan rétti Julian Assange til að vera álitinn saklaus uns sekt er sönnuð, að því er fram kemur í tilkynningu Íslandsdeildar Amnesty.

„Julian Assange birti trúnaðargögn í tengslum við störf sín hjá Wikileaks. Slík birting á ekki að vera refisverð og svipar til starfa fjölmiðlafólks sem reglulega rannsakar mál í starfi sínu. Þessar ákærur gætu haft hrollvekjandi afleiðingar fyrir tjáningarfrelsið og leitt til þess að fjölmiðlafólk ritskoði sjálft sig af ótta við málsókn,“ segir í tilkynningu Amnesty.

Fulltrúar Íslandsdeildar Amnesty International afhentu undirskriftirnar í bandaríska sendiráðinu í …
Fulltrúar Íslandsdeildar Amnesty International afhentu undirskriftirnar í bandaríska sendiráðinu í dag.
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert