Ekki sektað fyrir nagla

mbl.is/Ernir Eyjólfsson

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu vill taka fram að hún sektar ekki ökumenn bifreiða sem eru komnar á nagladekk þrátt fyrir að slík dekk séu almennt leyfð frá 1. nóvember til 15. apríl. Þetta kemur fram á Facebook-síðu lögreglunnar í gær.

„Veturinn hefur þegar gert vart við sig víða á landinu – meðal annars á höfuðborgarsvæðinu og viðbúið að frost og hálka eigi eftir að gera ökumönnum áfram lífið leitt. Lögreglan hefur fengið mikið af fyrirspurnum um nagladekk frá ökumönnum á starfssvæði LRH sem og þeim sem eru koma til eða frá höfuðborgarsvæðinu, og því er það undirstrikað að ökumenn bifreiða, sem eru búnar nagladekkjum, eiga ekki sekt yfir höfði sér.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert