„Þetta er brýnt samfélagslegt verkefni“

Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra.
Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra. mbl.is/Kristinn Magnússon

Mennta- og menningarmálaráðuneytið vinnur nú að úttekt á framkvæmd kynfræðslu í skólum. Er þetta gert í kjölfar ályktunar Alþingis, sem fól Lilju Alfreðsdóttur mennta- og menningarmálaráðherra að samþætta forvarnir og kennslu á öllum skólastigum.

Í aðgerðaáætlun sem fylgir þingsályktuninni er meðal annars fjallað um að efla aðgengi að aldursmiðuðu náms- og fræðsluefni, gera mat á áhrifum aðgengis barna og ungmenna að klámi og skipuleggja fræðsluátak um kynferðislega friðhelgi.

Ráðherra fundaði í gær um málefni kynfræðslu í skólum og ræddi þar m.a. við Sólborgu Guðbrandsdóttur sem hefur haldið fyrirlestra um þessi mál í grunn- og framhaldsskólum undanfarin misseri, auk þess sem hún heldur úti instagramreikningnum „Fávitar“ þar sem vakin er athygli á algengi kynferðisofbeldis, en fylgjendur reikningsins eru tæplega 30 þúsund. Einnig var rætt við Sigríði Dögg kynfræðing, en hún hefur sinnt kynfræðslu um land allt í áratug og gefið út þrjár bækur um það viðfangsefni.

„Við áttum frábæran fund um þetta mikilvæga málefni sem brennur á mörgum – ekki síst unga fólkinu okkar sem kallar eftir öflugri fræðslu um kynferðismál. Þetta er brýnt samfélagslegt verkefni,“ segir Lilja í fréttatilkynningu sem send var út í dag. Hún segir fyrstu skref vera að fela starfshópi að vinna fyrrnefnda úttekt og skila tillögum til úrbóta.

„Við munum í kjölfarið leita leiða til þess að efla kynfræðslu svo tryggt sé að hún sé ávallt í takt við þarfir nemenda. Sú vitundarvakning sem orðið hefur um kynferðislegt og kynbundið ofbeldi og áreitni er geysilega mikilvæg fyrir samfélagið, en það er okkar að tryggja að sú þekking og vitund skili sér markvisst inn í skólakerfið,“ segir ráðherra að lokum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert