Frjáls för verði til Íslands frá grænum löndum

Ráðherraráðið hefur lagt til tilmæli sem byggja á því að …
Ráðherraráðið hefur lagt til tilmæli sem byggja á því að litakóða lönd eftir stöðu faraldursins í hverju landi fyrir sig. Eggert Jóhannesson

Íslensk stjórnvöld hafa samþykkt tilmæli ráðherraráðs Evrópusambandsins um breytingar á  Schengen-regluverkinu. Markmið tilmælanna er að samræma aðgerðir vegna takmarkana á landamærum vegna Covid-19-faraldursins. 

Ráðherraráðið samþykkti um miðjan október tilmæli um samræmda nálgun á ferðatakmörkunum á faraldurstímum. „30. október samþykktu aðildarríkin að þessi tilmæli væru einnig með í þróun Schengen-regluverksins,“ segir Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra í samtali við mbl.is.  

Hvert land skoðað fyrir sig 

Takmarkanirnar snúa að stöðu Covid-19-faraldursins í hverju landi fyrir sig. Settir verða upp samræmdir litakóðar sem eiga að gefa til kynna stöðu faraldursins í hverju landi fyrir sig. Munu ferðatakmarkanir taka tillit til þess hver staðan er hverju sinni. 

  • Grænn litur þýðir að nýgengi smita er undir 25 á hverja 100.000 íbúa og hlutfall jákvæðra sýna er undir 4%. Má líta svo á að íbúar þeirra landa geti ferðast frjálst á milli landa. 
  • Appelsínugulur litur þýðir að nýgengi er undir 50 en hlutfall jákvæðra sýna er 4% eða meira eða nýgengi er 25-150 og hlutfall jákvæðra sýna er undir 4%. 
  • Rauður litur á við í öðrum tilvikum þar sem nýgengi er yfir 50.

Kveðið er á um tiltekin lykilviðmið þegar ákvörðun er tekin um að hefta frjálsa för vegna COVID-19-faraldursins, og eru þau eftirtalin:

  • Farið er eftir 14 daga nýgengi smita á hverja 100.000 íbúa.
  • Skoðað er hlutfall jákvæðra sýna af heildarfjölda tekinna sýna undanfarna viku. 
  • Eins er farið eftir svonefndu „sýnatökuhlutfalli“, þ.e. fjöldi sýna sem tekinn er á hverja 100.000 íbúa undanfarna viku

 „Mælikvarðarnir hafa til þessa ekki verið samræmdir. Þannig geta ferðamenn úr einu landi verið skilgreindir rauðir af sumum stjórnvöldum en ekki af öðrum. ESB er að reyna að samræma þessi viðmið,“ segir Áslaug Arna. 

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra.
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra. Kristinn Magnússon

Til áréttingar er hér ekki um lagalega bindandi reglur að ræða, heldur tilmæli til ríkjanna. Eins og sakir standa myndu flest lönd Evrópu skilgreinast sem rauð.   

Hugnast ekki breytingar við landamærin 

Fram kom í viðtali Þórólfs Guðnasonar við RÚV í dag að hann hyggist í minnisblaði leggja það til að allir sem koma inn í landið fari í skimun í stað þess að fólk hafi val um að fara í 14 daga sóttkví. Til þessa hefur fólk haft val um að fara í skimun og sóttkví í fimm daga áður en það er skimað aftur eða að fara í 14 daga sóttkví. 

„Staðan er þannig að það eru örfáir að velja sóttkvína og það er mitt mat að það verði að vera val. Síðan er markmiðið að lyfta þessum takmörkunum í takti við þau áform um að reyna að lifa með veirunni. Ég tel ekki þörf á að setja enn frekari takmörk á landamæri, heldur snýst vinnan núna um að leita leiða til að stuðla að frjálsri för fólks, t.d. með því að viðurkenna vottorð frá öðrum löndum um neikvætt Covid-próf,“ segir Áslaug. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert