Ísland ekki lengur rautt

Kort/Sóttvarnastofnun Evrópu

Ísland er ekki lengur rautt samkvæmt flokkun Sóttvarnastofnunar Evrópu eftir margra vikna veru í flokki rauðra ríkja. Langflest ríki Evrópu tilheyra nú rauða flokknum, það eru áhættusvæði.

Kortið er uppfært á fimmtudögum og er til stuðnings aðgerðum Evrópska efnahagssvæðisins um frjálsa för á tímum Covid-19. 

Tak­mark­an­irn­ar snúa að stöðu Covid-19-far­ald­urs­ins í hverju landi fyr­ir sig. Sett­ir verða upp sam­ræmd­ir litakóðar sem eiga að gefa til kynna stöðu far­ald­urs­ins í hverju landi fyr­ir sig. Munu ferðatak­mark­an­ir taka til­lit til þess hver staðan er hverju sinni. 

  • Grænn lit­ur þýðir að ný­gengi smita er und­ir 25 á hverja 100.000 íbúa og hlut­fall já­kvæðra sýna er und­ir 4%. Má líta svo á að íbú­ar þeirra landa geti ferðast frjálst á milli landa. 
  • App­el­sínu­gul­ur lit­ur þýðir að ný­gengi er und­ir 50 en hlut­fall já­kvæðra sýna er 4% eða meira eða ný­gengi er 25-150 og hlut­fall já­kvæðra sýna er und­ir 4%. 
  • Rauður lit­ur á við í öðrum til­vik­um þar sem ný­gengi er yfir 50.

Kveðið er á um til­tek­in lyk­ilviðmið þegar ákvörðun er tek­in um að hefta frjálsa för vegna COVID-19-far­ald­urs­ins, og eru þau eft­ir­tal­in:

  • Farið er eft­ir 14 daga ný­gengi smita á hverja 100.000 íbúa.
  • Skoðað er hlut­fall já­kvæðra sýna af heild­ar­fjölda tek­inna sýna und­an­farna viku. 
  • Eins er farið eft­ir svo­nefndu „sýna­töku­hlut­falli“, þ.e. fjöldi sýna sem tek­inn er á hverja 100.000 íbúa und­an­farna viku.

Ísland er meðal þeirra ríkja sem Sóttvarnastofnun Evrópu heldur utan um upplýsingar um en það eru ríki ESB, EES og Bretlands. 

Nýjar uppfærðar tölur um nýgengi smita á hverja 100 þúsund íbúa eru birtar á vef stofnunarinnar klukkan 11 alla morgna. Í gær var Ísland komið í flokk þeirra ríkja sem eru með fæst smit en fyrir nokkrum vikum var Ísland meðal þeirra sjö landa sem voru með flest smit á hverja 100 þúsund íbúa síðustu tvær vikur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert