„Allir sprittaðir“ í skötu

Skatan hjá Geir í Hafbergi var vel kæst að venju.
Skatan hjá Geir í Hafbergi var vel kæst að venju. mbl.is/Árni Sæberg

Skötuveislur virðast hafa farið að mestu leyti fram í heimahúsum þetta árið ef marka má orð Geirs Más Vilhjálmssonar, eiganda fiskbúðarinnar Hafbergs í Gnoðarvogi. Geir hélt skötuveislu í gær fyrir hverja þá sem mæta vildu.

„Hvernig dettur þér í hug að hringja núna?“ spurði Geir þegar blaðamaður Morgunblaðsins hringdi í hann í gærkvöldi. Hann var nú bara að gantast en viðurkenndi þó að „bilað“ hefði verið að gera. „Jú, salan var vonum framar. Við vorum með skötuveislu fyrir 15 manns í einu og allir fengu 45 mínútur. Ég held að þetta hafi endað í 150 manns. Allir sprittaðir auðvitað.“

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert