„Alvarleg aðför að sóttvörnum landsins“

Reynir Arngrímsson, formaður Læknafélags Íslands.
Reynir Arngrímsson, formaður Læknafélags Íslands. mbl.is/​Hari

Læknafélag Íslands kallar eftir því að lagastoð fyrir ýtrustu sóttvörnum verði tryggð. Alþingi þurfi að leiðrétta mistök sín og breyta lögum til að sóttvarnir haldi.

Þetta er haft eftir Reyni Arngrímssyni, formanni Læknafélags Íslands, á vef félagsins vegna niðurstöðu héraðsdóms um að ekki megi skikka fólk á farsóttarheimili í fimm daga við komuna til landsins.

„Úrskurður héraðsdóms er alvarleg aðför að sóttvörnum landsins og úrræðum sem þarf að vera hægt að grípa til á óvissu- og hættutímum. Þá er ámælisvert að ekki hafi fjölskipaður dómur með sérfræðinga á sviði sóttvarna fjallað um málið heldur aðeins einn dómari,“ segir Reynir á vefnum.

Hann bætir við að Alþingi verði að tryggja að heilbrigðisyfirvöld hafi óyggjandi heimildir til aðgerða þegar alvarlegar farsóttir ganga. „Ljóst hefur verið um alllangt skeið að einstaklingar, ferðamenn og að einhverju leyti aðstandendur þeirra, sem hafa ekki virt sóttvarnatilmæli, hafa verið aðalveikleikinn í sóttvörnum landsins,“ segir hann.

Heilbrigðisstarfsmenn að störfum.
Heilbrigðisstarfsmenn að störfum. Ljósmynd/Þorkell Þorkelsson

17 þúsund heilbrigðisstarfsmenn látist

Á heimsvísu hafi opinberar tilkynningar sýnt að ríflega 131 milljón manna hafi veikst og 2,8 milljónir látist af völdum Covid-19.

„Samkvæmt tölum Amnesty International hafa yfir 17.000 heilbrigðisstarfsmenn látið lífið við störf sín í faraldrinum. Slíkt er óþekkt nema helst í stríði eða styrjöldum,“ segir hann.

Í Evrópu hafi 26 milljónir veikst og 610 þúsund látist eða tvöfaldur íbúafjöldi Íslands.

„Í mörgum löndum skilgreindum sem dökkrauðum er nýgengi 500 tilfelli eða fleiri pr. 100.000 íbúa. Til samanburðar er nýgengistalan á Íslandi 25 en hækkandi, vegna smita tengdum skæðari afbrigði af faraldrinum, sem brýnt er að stemma stigu við með öllum tiltækum ráðum,“ segir Reynir. „Góðum árangri er því ógnað vegna lagatæknilegra mistaka í meðförum Alþingis á sóttvarnalögum.“

Reynir segist vona að niðurstöðu héraðsdóms verði hnekkt af æðra dómstigi.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert