Andlát vegna Covid-19

Landspítalinn í Fossvogi.
Landspítalinn í Fossvogi. Ljósmynd/mbl.is

Einn lést á síðastliðnum sólarhring á Landspítalanum úr Covid-19. Þetta kemur fram í uppfærðum tölum á covid.is.

Þetta er fyrsta andlátið vegna Covid-19 hérlendis síðan í maí síðastliðnum.

Um er að ræða sjúkling á sjötugsaldri en að sögn Önnu Sigrúnar Baldursdóttur, starfandi forstjóra Landspítalans, hefur stofnunin ekki heimild til að veita frekari upplýsingar um andlátið að svo stöddu.

Fréttin hefur verið uppfærð.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert