Fella niður sýnatöku og bólusetningu

Ragnheiður Ósk varar við því að heimahjúkrun gæti seinkað.
Ragnheiður Ósk varar við því að heimahjúkrun gæti seinkað. Eggert Jóhannesson

Öll almenn þjónusta hjá Heilsugæslunni á höfuðborgarsvæðinu fellur niður fyrir hádegi á morgun, undir hana fellur sýntaka og bólusetning. Eingöngu bráðaþjónusta verður veitt fyrir hádegi.

Þetta segir Ragn­heiður Ósk Er­lends­dótt­ir, fram­kvæmda­stjóri hjúkr­un­ar hjá Heilsu­gæslu höfuðborg­ar­svæðis­ins, í samtali við mbl.is.

Rauð viðvörun vegna veðurs hef­ur verið gef­in út fyr­ir höfuðborg­ar­svæðið, Suður­land og Faxa­flóa. Hún tek­ur gildi klukk­an 4 í nótt.

Geti mætt eftir hádegi

Ragnheiður segir að um 600-700 manns hafi verið bókaðir í sýnatöku fyrir hádegi á morgun. Þeir sem eiga pantaðan tíma fyrir hádegi munu geta mætt eftir hádegi, að því gefnu að verður leyfi.

Þá varar Ragnheiður við því að það gæti orðið seinkun á heimahjúkrun á morgun. 

Samkvæmt tilkynningu frá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins verða engar bólusetningar í Laugardalshöll og ekki er gert ráð fyrir að opið verði í sýnatöku á Suðurlandsbraut.

Fréttin hefur verið uppfærð.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka