Rauð viðvörun gefin út

Spáð er miklu óveðri í nótt og í fyrramálið.
Spáð er miklu óveðri í nótt og í fyrramálið. Kort/Veðurstofa Íslands

Rauð viðvörun vegna veðurs hefur verið gefin út fyrir höfuðborgarsvæðið, Suðurland og Faxaflóa. Hún tekur gildi klukkan 4 í nótt.

Viðvörunin gildir til klukkan 8.30.

„Suðaustan 23-30 m/s með snjókomu og skafrenningi en slyddu næst sjávarsíðunni. Hvassast í efri byggðum höfuðborgarvsæðisins og á Kjalarnesi. Miklar líkur á foktjóni og ófærð innan hverfa. Fólki er ráðlagt að ganga vel frá lausum munum. Verktökum er bent á að ganga vel frá framvkæmdasvæðum,“ segir á vef Veðurstofunnar um veðrið sem er framundan á höfuðborgarsvæðinu.

Annars staðar á landinu hefur appelsínugul viðvörun verið gefin út.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert