60% andlátanna orðið á þessu ári

Frá gjörgæsludeild Landspítala.
Frá gjörgæsludeild Landspítala. Ljósmynd/Landspítali/Þorkell

Um 60% þeirra andláta sem hafa orðið af völdum Covid-19 hafa átt sér stað á þessu ári, þrátt fyrir að faraldurinn hafi nú geisað hér á landi í rúm tvö ár. 

93 andlát hafa verið tilkynnt til sóttvarnalæknis sem tengjast smiti af völdum Covid-19, þar af 56 í ár, að því er fram kemur á heimasíðu embættis landlæknis. 

Þar kemur fram að útbreiðsla og fjöldi kórónuveirusmita sé mun meiri nú en fyrri ár og þannig hafa smit náð til viðkvæmra hópa, til dæmis eldra fólks og þeirra sem hafa undirliggjandi sjúkdóma eða eru á ónæmisbælandi lyfjum.

„Flest andlát hafa orðið meðal einstaklinga með undirliggjandi áhættuþætti, þó það sé ekki algilt. Þáttur Covid-19 sýkinga í andlátunum getur því verið óljós í sumum tilvikum,“ segir á heimasíðu embættis landlæknis. 

Graf/Embætti landlæknis

Ekki öll andlát hjá fólki með Covid-19 tilkynnt sem andlát vegna Covid

Þar er  tekið fram að aðeins þau andlát sem læknar meta að Covid-19 hafi valdið, stuðlað að eða á einhvern hátt átt þátt í andlátinu á að tilkynna til sóttvarnalæknis.

„Sóttvarnalæknir sendi nýlega dreifibréf um skilgreiningu á andláti vegna Covid-19 til að auðvelda læknum að að aðskilja tilvik þar sem dánarorsök var önnur þótt viðkomandi hafi nýlega haft Covid-19 sjúkdóm en þau andlát á ekki að tilkynna.

Í dánarvottorði  sem send eru til embættis landlæknis eru tilgreindar dánarorsakir. Til að dauðsfall sé skilgreint vegna Covid-19 mega ekki líða meira en 28 dagar frá greiningu á Covid-19 og ekki á að vera tímabil algjörs bata af Covid-19 á milli veikinda og andláts.“

Í færslunni á vef embættis landlæknis eru tölur yfir andlát einnig skoðaðar í samhengi við útbreiðslu veirunnar. Þá kemur í ljós að þó dauðsföll séu fleiri á undanförnum vikum en í fyrri bylgjum, þá er dánarhlutfall þeirra sem greinast með Covid-19 smit lægra en í fyrri bylgjum.

„Í fyrstu þremur bylgjum faraldursins þá létust um 0,5% af þeim sem greindust smitaðir. Eftir að Delta afbrigðið varð allsráðandi sumarið 2021 og síðan Ómíkron afbrigðið frá desember 2021 hefur dánarhlutfallið verið 10-15 sinnum lægra eða um 0,03-0,04%. Vafalaust má þakka útbreiddum bólusetningum að stórum hluta fyrir þessa lækkun.“

Graf/Embætti landlæknis

Þrjú undir þrítugu látist

Flest andlát hafa orðið á meðal 70 ára og eldri eða 47 talsins.

„Þá hafa þrír undir þrítugu látist og þar af eitt barn á þriðja aldursári. Á árinu 2020 voru 29 dauðsföll af völdum Covid-19 tilkynnt en árið 2021 voru þau átta. Bráðabirgðagögn sýna að dánartíðni vegna Covid-19 það sem af er árinu 2022 er 15 per 100 þúsund íbúa en var um eða undir 5 per 100 þúsund í fyrri bylgjum.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert