Strætó neyðist til að draga úr þjónustu

Gert er ráð fyrir að með breytingunum megi spara um …
Gert er ráð fyrir að með breytingunum megi spara um 200 milljónir í rekstri Strætó. mbl.is

Minnka þarf þjónustutíma og þjónustustig Strætó vegna aðhaldsaðgerða í rekstri félagsins til að ná endum saman, en gert er ráð fyrir að spara þurfi um 275 milljónir króna á árinu 2022. Þetta kemur fram í tilkynningu.

Meðal annars þarf að draga úr tíðni dagferða á einhverjum leiðum og gera breytingar á kvöldferðum fjölda leiða. Gert er ráð fyrir að með breytingunum megi spara rúmlega 200 milljónir króna í rekstri Strætó.

Í tilkynningunni segir að Covid-faraldurinn hafi leikið rekstur Strætó grátt og hafi tekjur minnkað um allt að 1,5 milljarða króna á síðustu tveimur árum.

Breytingarnar fela m.a. breytingar á kvöldferðum á leiðum 7, 11, 12, 15, 19, 22, 23, 28, 35 og 36. Leið 24 mun aka á 30 mín tíðni allan daginn í stað 15 mínútna tíðni á annatíma.

Hér fyrir neðan má sjá nánari skýringu á þeim breytingum sem verða gerðar en þær taka gildi sunnudaginn 3. apríl.

 

Leið 7

Virkir dagar

Seinasta ferð frá Tungubökkum til Egilshallar fer kl. 21:08 í staðinn fyrir kl. 22:38

Seinasta ferð frá Egilshöll til Tungubakka fer kl. 21:09 í staðinn fyrir kl. 22:39

Helgar

Seinasta ferð frá Tungubökkum til Egilshallar fer kl. 21:04 í staðinn fyrir kl. 21:08

Seinasta ferð frá Egilshöll til Tungubakka fer kl. 21:05 í staðinn fyrir kl. 21:09

Leið 11

Seinasta ferð frá Eiðistorgi til Mjóddar fer kl. 23:23 í staðinn fyrir kl. 00:23

Seinasta ferðin frá Mjódd til Eiðistorgs fer kl. 23:22 í staðinn fyrir kl. 00:22

Leið 12

Seinasta ferð frá Ártúni til Skerjafjarðar fer kl. 23:07 í staðinn fyrir kl. 23:37

Seinasta ferð frá Skerjafirði til Ártúns fer kl. 23:20 í staðinn fyrir kl. 23:50

Leið 15

Seinasta ferð frá Flyðrugranda til Reykjavegar fer kl. 23:01 í staðinn fyrir  kl:23:31

Seinasta ferð frá Reykjavegi til Flyðrugranda fer kl. 23:15 í staðinn fyrir kl:23:45

Leið 19

Virkir dagar

Seinasta ferð frá Ásvallalaug til Kaplakrika fer kl.22:10 í staðinn fyrir kl. 22:40

Seinasta ferð frá Kaplakrika til Ásvallalaug fer kl.22:06 í staðinn fyrir kl:22:36

Laugardagar

Seinasta ferð frá Ásvallalaug til Kaplakrika fer kl. 22:22 í staðinn fyrir kl. 22:52

Seinasta ferð frá Kaplakrika til Ásvallalaugar fer kl. 22:18 í staðinn fyrir kl:22:48

Leið 22

Virkir dagar. 

Leið 22 breytist í pöntunarþjónustu kl. 19:44 og fer seinasti vagn frá Ásgarði kl. 19:14.

Leið 23

Leið 23 breyist í pöntunarþjónustu kl. 19:47 og fer seinasti vagn kl. 19:17.

 

Leið 24

Leið 24 mun aka á 30 mínútna tíðni alla daga í stað þess að aka á 15 mínútna tíðni á annatímum.

 

Leið 28

Seinasta ferð frá Dalaþingi til Hamraborgar fer kl. 20:02 í staðinn fyrir kl. 23:32

Seinasta ferð frá Hamraborg til Dalaþings fer kl. 20:05 í staðinn fyrir kl. 23:35

Leiðir 35 og 36

Leið 35 

Seinasta ferð frá Hamraborg fer kl. 23:07 i staðin fyrir kl. 23:37

Leið 36

Seinasta ferð frá Hamraborg fer kl. 20:07 i staðin fyrir kl. 22:07

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert