„Það voru allir óánægðir með þetta“

Verkalýðsleiðtogarnir Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, og Kristján Þórður Snæbjarnarson, …
Verkalýðsleiðtogarnir Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, og Kristján Þórður Snæbjarnarson, formaður Rafiðnaðarsambandsins við undirritun í gær. mbl.is/Kristinn Magnússon

Bjarni Þór Sigurðsson, stjórnarmaður í VR og fulltrúi í samninganefnd félagsins, segir að fulltrúar VR hefðu auðvitað viljað fara lengra í kjarasamningunum sem voru undirritaðir í gær. Með því að vera betur stillt saman öll þá hefði það hugsanlega getað gerst, „þá á ég við hreyfinguna í heild sinni,“ segir Bjarni í samtali við Morgunblaðið.

„Það er mikill samhugur í stjórn VR. Það voru allir óánægðir með þetta. Við aftur á móti töldum að að svo komnu máli, virtist ekki vera meira í spilunum.“

Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR og LÍV, neitaði að veita fjölmiðlum viðtal eftir undirritun kjarasamnings. Bjarni Þór sagði í samtali við Morgunblaðið að Ragnar hefði ætlað sér að hvíla sig og að hann myndi svara fjölmiðlum degi síðar, eða í dag, þriðjudag.

Kjarasamningur Samtaka atvinnulífsins, VR, samflots iðn- og tæknigreina og Landssambands verslunarmanna var undirritaður í Karphúsinu í hádeginu í gær. Samningarnir koma til með að ná til um 60.000 manns á vinnumarkaði. Almenn launahækkun verður 6,75% en að hámarki 66.000 krónur á mánuði.

Samninganefndir félagana funduðu til klukkan fimm í gærmorgun í Karphúsinu en VR, LÍV og Starfsgreinasamband Íslands vísuðu kjaraviðræðum við SA til ríkissáttasemjara 14. nóvember síðastliðinn. „Þarna skiluðu þolinmæði og þrautseigja samningi,“ sagði Aðalsteinn Leifsson ríkissáttasemjari við Morgunblaðið.

Samningurinn var birtur á heimasíðu VR í gærkvöldi. Nýir launataxtar eru hluti af samningnum og taka gildi afturvirkt, eða frá 1. nóvember á þessu ári. Þar eru lægstu byrjunarlaun 406.923 krónur, hjá afgreiðslufólki. Neðst í samningnum er tekið fram að sérstök forsendunefnd verði skipuð fjórum fulltrúum úr sameiginlegum starfshópi samningsaðila sem fylgist með framvindu efnahagsmála. „Verði þróun efnahagsmála með þeim hætti að forsendunefnd meti að forsendur um þróun verðlags hafi brostið verður kallað til sérstaks fundar þar sem rædd verða viðbrögð aðila vinnumarkaðsins og stjórnvalda,“ segir í samningnum.

Ríkisstjórnin kynnti á blaðamannafundi í gær breytingar á barnabóta- og vaxtabótakerfum samhliða nýjum kjarasamningum. Áhersla verður lögð á að fjölga íbúðum og auka stuðning við barnafólk.

Lesa má meira um málið í Morgunblaðinu í dag. 

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert