Hópast við Hólmsheiði: „Alveg glórulaust dæmi“

Ragnheiður vonar að gripið verði í taumana í nótt.
Ragnheiður vonar að gripið verði í taumana í nótt. Ljósmynd/Aðsend

Ragnheiður Arnardóttir, systir Eddu Bjarkar sem lögreglan vill flytja úr landi í nótt, er nú komin upp að fangelsinu á Hólmsheiði og hyggst reyna að koma í veg fyrir flutning systur sinnar.

Fleiri eru með Ragnheiði í liði. Vinir og vandamenn Eddu eru líka á staðnum; bróðir, sonur og tengdadóttir þar á meðal.

Þangað er fólkið komið á að minnsta kosti ellefu bílum. Þeir loka fyrir veginn að mestu leyti en hindra þó ekki alveg för þar um að sinni.

Vonast til að þingið grípi í taumana

Ragnheiður bætir við að auk þess sé einn lögreglubíll kominn á staðinn, „og var að reyna að reka okkur í burtu“.

„Við ætlum að vera hér þangað til annað kemur í ljós,“ segir hún og tekur fram að fjöldi fólks hafi verið ræstur út. Vonast sé til að Alþingi grípi í taumana.

Fyrst var greint frá því á mbl.is fyrr í kvöld að flytja ætti Eddu úr landi, auk þess sem rætt var við lögmann hennar um stöðuna. Furðar hann sig á framferði lögreglunnar.

Frá Hólmsheiði núna í nótt.
Frá Hólmsheiði núna í nótt. Ljósmynd/Aðsend

Geta alveg eins tekið þetta fyrir á næsta ári

„Við sitjum hér og bíðum og vonumst til að þingheimur taki við sér. Mér skilst að einhver ætli að taka þetta upp á morgun. En þeir geta alveg eins tekið þetta fyrir á næsta ári, ef þeir ætla að taka þetta fyrir á morgun.“

Aðspurð segir hún að samkvæmt sínum heimildum eigi að flytja systurina Eddu úr fangelsinu klukkan fimm í nótt. Út frá því telur hún að nýta eigi farþegaflug frá Keflavíkurflugvelli á áttunda tímanum, en fleiri en ein vél tekur þá á loft til Óslóar.

„En við verðum bara hér, þangað til við heyrum eitthvað frá einhverjum.“

Hvernig heldurðu að þetta fari núna í nótt?

„Við erum ekkert rosalega bjartsýn. Ég meina, ef þeir ná að koma henni út, þá náttúrulega fellur málið fyrir Landsrétti um sjálft sig. Það er náttúrulega búið að brjóta á hennar rétti. Það er búið að kæra þessa ákvörðun og Landsréttur á að úrskurða. En ef hún verður flutt úr landi áður en það er gert, þá náttúrulega fellur málið niður.“

Ragnheiður kveðst ekki bjartsýn.
Ragnheiður kveðst ekki bjartsýn. Ljósmynd/Aðsend

Þverneitaði að láta loka sig inni í klefanum

Það er núna seint í kvöld, sem henni er tjáð að það eigi að flytja hana úr landi?

„Já, þeir voru sem sagt að loka fangaklefanum klukkan 22 í kvöld og eru að setja hana inn í klefann. Þá segja þeir við hana að hún verði flutt út í nótt. Og svo ætla þeir bara að loka hana inni.“

Ragnheiður segir systur sína hafa þverneitað að láta loka sig inni.

„Ekki fyrr en hún er búin að hringja í lögmann. Þeir ætluðu ekki að leyfa henni það, en hún náði að fá það í gegn og fékk að hringja í lögmann. Þannig við erum eiginlega bara bit yfir því, hvernig þeir eru að vinna þetta mál, í skjóli nætur.

Hún hefði bara verið farin úr landi, þegar allir færu á fætur í fyrramálið, ef hún hefði ekki neitað að fara inn í klefann. Og það síðasta sem ég heyrði frá þeim var að ég mætti koma í heimsókn til hennar klukkan 9.30 í fyrramálið,“ segir Ragnheiður.

„Það er verið að fela hluti og við vitum ekkert af hverju. Eins og lögmaðurinn segir – hann veit ekki hver tekur þessa ákvörðun. Það virðist enginn vita neitt. Þetta er bara alveg glórulaust dæmi. Bara, hver er það sem stýrir þessu?“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert