Arnar Þór kynnir „stórar ákvarðanir“ á morgun

Arnar Þór Jónsson, varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins.
Arnar Þór Jónsson, varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins.

Arnar Þór Jónsson, varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi héraðsdómari, kveðst hafa tekið „stórar ákvarðanir“ er varða mikilvæg mál og boðar því til blaðamannafundar á morgun.

Frá þessu greinir hann í fréttatilkynningu sem hann sendi frá sér en fundurinn verður haldinn heima hjá honum í Garðabæ.

Ekki er tekið fram hvað fundurinn mun fjalla um annað en að hann sé haldinn „í tilefni af stórum ákvörðunum sem ég hef tekið og varða mikilvæg mál“.

Kvaðst hann munu tala í rúmlega 20 mínútur og eftir það „fúslega svara þeim spurningum sem menn kunna að vilja setja fram“.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert