Töldu sig hafa leyfi fyrir rafmagnsnotkun

Askur Hrafn segir mótmælendur hafa gleymt að sækja um afnot …
Askur Hrafn segir mótmælendur hafa gleymt að sækja um afnot af rafmagni á Austurvelli. Það hafi nú verið gert og bíður umsóknin afgreiðslu hjá Reykjavíkurborg. mbl.is/Árni Sæberg

Ask­ur Hrafn Hann­es­son, aðgerðasinni og einn þeirra sem stend­ur að skipu­lagn­ingu mót­mæla Palestínu­manna sem tjalda á Aust­ur­velli, segir starfsmann frá Reykjavíkurborg hafa aðstoðað mótmælendur við að tengja rafmagnskapal í viðburðaskáp í upphafi mótmælanna. 

Því hafi mótmælendurnir talið sig hafa fengið rafmagn með leyfi frá borginni. Mótmælendur hringdu á skrifstofu Reykjavíkurborgar og var tjáð í því símtali að ekki yrðu gerðar athugasemdir við notkun rafmagnsins. 

„Við héldum að það væri ekkert því til fyrirstöðu að við notuðum rafmagnið fyrst maður frá borginni kom og setti þetta upp fyrir okkur,“ segir Askur í samtali við mbl.is. 

Telur hann málið því byggja á misskilningi milli mótmælenda og borgarinnar.

Í samtali við mbl.is staðfestir Askur að nú sé búið að sækja formlega um leyfi fyrir not á rafmagni á Austurvelli og að nú sé beðið eftir formlegu samþykki frá borgaryfirvöldum. 

Umsóknin verður skoðuð á morgun

mbl.is greindi frá því fyrr í kvöld að mótmælendur hefðu haft afnot af viðburðaskápnum án leyfis undanfarið. Umsókn hefði þó borist í dag um afnot af þessum skáp að sögn Björgvins Sigurðarsonar, deildarstjóra afnota og eftirlits hjá Reykjavíkurborg.

Mótmælin bein­ast gegn aðgerðal­eysi ís­lenskra stjórn­valda í tengsl­um við fjöl­skyldusam­ein­ing­ar Palestínu­manna sem eiga um sárt að binda og eru á flótta und­an linnu­laus­um árás­um Ísra­els­hers sem staðið hafa síðan í októ­ber og kostað tæp­lega 23.000 Palestínu­menn lífið eft­ir því sem palestínska heil­brigðisráðuneytið greindi ný­lega frá en það lýt­ur stjórn Ham­as-hryðju­verka­sam­tak­anna.

Sagði Björgvin umsókn mótmælenda óafgreidda og að hún verði skoðuð á morgun og afgreidd í samræmi við hið venjulega kerfi. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert