„Aumingjar“ og „drullusokkar“

Fjöldi mótmælenda er saman kominn fyrir utan ráðherrabústaðinn.
Fjöldi mótmælenda er saman kominn fyrir utan ráðherrabústaðinn. mbl.is/Klara Ósk

Fjöldi mótmælenda er mættur fyrir framan Ráðherrabústaðinn, þar sem ríkisstjórnin fundar, til að fordæma aðgerðarleysi ríkisstjórnarinnar vegna Gasa. 

Félagið Ísland/Palestína fer fyrir mótmælunum og eru þau boðuð til að krefja íslensk stjórnvöld um að veita þeim umsækjendum um alþjóðlega vernd sem koma frá Palestínu og eru staddir hér á landi vernd án tafa og stöðvi allar brottvísanir á palestínsku flóttafólki frá Íslandi. 

Inn í Ráðherrabústaðinn heyrast hróp og köll á borð við: „Aumingjar,“ og „drullusokkar“. Því má segja að ráðherrunum sé ekki vönduð kveðjan frá mótmælendum. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert