Fjórum ferðum aflýst innanlands

Búið er að aflýsa fjórum innanlandsflugum í dag.
Búið er að aflýsa fjórum innanlandsflugum í dag. mbl.is/Sigurður Bogi

Icelandair er búið að aflýsa fjórum innanlandsflugum í dag vegna óveðurs. Fleiri flug eru á áætlun seinna í dag og verður tekið stöðuna á því hvort að breyta þurfi þeim þegar líður á daginn.

Þetta staðfestir Ásdís Ýr Pétursdóttir, upplýsingafulltrúi Icelandair, í samtali við mbl.is.

Flugferðirnar sem um ræðir er annars vegar flug frá Reykjavík til Akureyrar og til baka og svo hins vegar flug frá Reykjavík til Ísafjarðar og til baka.

„Með aðrar flugferðir munum við taka stöðuna seinni partinn í dag og sjá hvernig veðrið þróast,“ segir Ásdís.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert