Fólk fari ekki af stað nema nauðsyn krefji

Bíll fór út af veginum á Garðbraut sem liggur að …
Bíll fór út af veginum á Garðbraut sem liggur að Garði í Suðurnesjabæ. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Lögreglan á Suðurnesjum segir storminn vera að skella á á Suðurnesjum og því sé ekki ráðlagt að fólk fari á ferðina út úr húsum nema nauðsyn krefji.

Þetta kemur fram í færslu lögreglunnar á Suðurnesjum á Facebook.

„Jæja þá er það að skella á okkur, staðan er að verða ansi slæm hvað varðar færð á svæðinu,“ byrjar færslan hjá lögreglunni.

„Við ítrekum fyrir fólki að vera ekkert að fara á ferðina nema nauðsynlegt sé og alls ekki á vanbúnum bílum.“

Skafrenningsspá sem gildir til klukkan 15.
Skafrenningsspá sem gildir til klukkan 15. Kort/Veðurstofa Íslands
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert