Mega búast við heitu vatni undir hádegi

Vatn streym­ir nú inn í heita­vatnstanka HS Orku á Fitj­um …
Vatn streym­ir nú inn í heita­vatnstanka HS Orku á Fitj­um en fram­kvæmd­ir við nýja hjá­v­eitu­lögn Njarðvíkuræðar­inn­ar gengu von­um fram­ar í nótt. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Íbúar á Suðurnesjum mega búast við að heitt vatn verði farið að streyma til fyrstu húsa undir hádegi í dag. 

Þetta segir Páll Erland, forstjóri HS Veitna í samtali við mbl.is, en viðgerð er lokið á hitaveituæðinni frá Svartsengi og heitt vatn farið að streyma í tankana á Fitjum. 

Á sama tíma og unnið var að því að gera við og tengja Njarðvíkuræðina, frá Svartsengi til Fitja, í nótt var unnið að undirbúningi þess að gangsetja kerfin í sveitarfélögunum að sögn Páls. 

Húsin næst Fitjum fá fyrst vatn

„Nú undir morgun fór vatn að streyma í hitaveitutanka og mega íbúar búast við því að heitt vatn verði farið að streyma í hús fyrir hádegi,“ segir Páll. 

Fyrst mun vatn taka að streyma á húsin næst Fitjum og í framhaldinu munu starfsmenn HS Veitna vinna þrotlaust að því að koma heitu vatni á allt svæðið á næsta sólarhring. 

Vakandi fyrir frostskemmdum

Páll segir þá vinnu sem starfsmenn HS Veitna hafa unnið síðustu daga við að koma heitu vatni inn á kerfin með tankbílum muni flýta fyrir því að heitt vatn komist á sem flest hús.

Hann segir húseigendur þó þurfa að vera vakandi fyrir því ef frostskemmdir hafa orðið á lögnunum. Þá þurfi að loka fyrir inntakslokann og hafa samband við þjónustuver HS Veitna. 

Fréttin hefur verið uppfærð.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert