Fjölskyldusameiningar Palestínumanna ekki lengur í forgangi

Umsóknir Palestínumanna um fjölskyldusameiningar njóta ekki lengur forgangs.
Umsóknir Palestínumanna um fjölskyldusameiningar njóta ekki lengur forgangs. mbl.is/Hari

Umsóknir um fjölskyldusameiningar Palestínumanna njóta ekki lengur forgangs, er fram kemur í tilkynningu Útlendingastofnunar. Gildir það um umsóknir sem berast frá og með deginum í dag.

Síðan um miðjan október 2023 hafa umsóknir palestínskra ríkisborgara um fjölskyldusameiningu notið forgangs hjá Útlendingastofnun og fólst það í því að umsóknirnar væru teknar fram fyr­ir umsókn­ir af sama toga frá rík­is­borg­ur­um annarra ríkja, sem hafi fyr­ir vikið færst aft­ar í röðina.

Stofnunin tók ákvörðunina í sameiningu við dómsmálaráðuneytið í kjölfar þrýstings vegna ástandsins á Gasasvæðinu, en yfir 30.000 Palestínumenn hafa látist þar síðan í október vegna aðgerða Ísraelshers eftir hryðjuverkaárásar Hamas.

320 umsóknir bíða afgreiðslu

Um 150 umsóknir um fjölskyldusameiningu frá palestínskum ríkisborgurum biðu hjá stofnuninni er sú ákvörðun var tekin, en um helmingur umsóknanna var þá þegar eldri en sex mánaða.

Frá því í október 2023 hafa 280 dvalarleyfi á grundvelli fjölskyldusameiningar við flóttamenn á Íslandi verið veitt, þar af 160 til ríkisborgara Palestínu. Þess að auki hafa 120 leyfi til annarra ríkisborgara, einkum Sýrlendinga, Venesúelabúa og Sómala verið veitt. Rúmlega 320 ríkisborgarar annarra ríkja bíða eftir afgreiðslu umsókna um fjölskyldusameiningu við flóttamenn.

Um 20 umsóknir um fjölskyldusameiningu við flóttamenn frá palestínskum ríkisborgurum eru nú í vinnslu hjá Útlendingastofnun en auk þeirra hefur mikill fjöldi umsókna borist frá Palestínumönnum sem ekki falla undir réttinn til fjölskyldusameiningar samkvæmt lögum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert