Greiða atkvæði um verkbann á VR

Sigríður Margrét Oddsdóttir er framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins sem nú efna …
Sigríður Margrét Oddsdóttir er framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins sem nú efna til allsherjaratkvæðagreiðslu um verkbann á félagsmenn VR. mbl.is/Kristinn Magnússon

Stjórn Samtaka atvinnulífsins hefur samþykkt einróma að efna til allsherjaratkvæðagreiðslu um verkbann á félagsmenn stéttarfélagsins VR. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá SA.

Sprettur samþykktin af atkvæðagreiðslu VR um boðun verkfallsaðgerða fyrir farþega- og hleðsluþjónustu Icelandair á Keflavíkurflugvelli en eftir því sem fram kemur í tilkynningu SA mun verkbann, komi til þess, ná til alls skrifstofufólks sem aðild á að VR og fellur undir almennan kjarasamning SA og VR.

Virðist ætlað að brjóta mótaða launastefnu

„Forysta VR hóf atkvæðagreiðslu um boðun verkfallsaðgerða fyrir farþega- og hleðsluþjónustu Icelandair á Keflavíkurflugvelli. Fyrstu lotu verkfalls er ætlað að standa í þrjá sólarhringa, frá kl. 00:01 föstudaginn 22. mars til kl. 23:59 sunnudaginn 24. mars. Aðgerðunum virðist ætlað að brjóta þá launastefnu sem var nýverið mörkuð með Stöðugleikasamningnum, launastefnu sem forysta VR tók sjálf þátt í að móta,“ segir þá í tilkynningu SA og eftirfarandi haft þar eftir Sigríði Margréti Oddsdóttur framkvæmdastjóra:

„Við höfum gengið frá Stöðugleikasamningi við öll stærstu stéttarfélög og landssambönd á almennum vinnumarkaði. Stöðugleikasamningurinn er fjögurra ára kjarasamningur sem tryggir launafólki 3,25-3,5% árlegar launahækkanir með 23,750 kr. lágmarki.“

Segir Sigríður svo að markmið samningsins séu að ná niður verðbólgu og stuðla að því að skilyrði skapist til vaxtalækkana en þeim markmiðum standi ógn af boðuðum skæruverkföllum í tengslum við sérkjarasamning sem leiði af aðalkjarasamningi VR.

Verja tækifærið til að ná stöðugleika

Verkbann sé úrræði atvinnurekanda í vinnudeilum sem SA séu óhrædd við að beita. „Í stað þess að forysta VR lami starfsemi tiltekinna fyrirtækja og atvinnugreina með verkföllum fárra félagsmanna munu SA með verkbanni auka þrýsting á VR að ljúka yfirstandandi kjaraviðræðum. Verkbann er sambærilegt verkfalli og þýðir að félagsfólk VR mætir ekki til starfa og launagreiðslur falla niður,“ er svo útskýrt.

Tilgangur boðaðs verkbanns af hálfu SA sé að þrýsta á forystu VR að ljúka yfirstandandi kjaraviðræðum í takt við þá stefnu sem þegar hafi verið mörkuð. „Tilgangur verkbannsins er að verja tækifærið til að ná efnahagslegum stöðugleika.“ segir Sigríður framkvæmdastjóri enn fremur.

Hófst atkvæðagreiðsla um verkbannið meðal allra aðildarfyrirtækja SA klukkan 12 í dag og boða samtökin í kjölfarið upplýsingafund klukkan 14. Stendur atkvæðagreiðslan að sögn SA til klukkan 14 á fimmtudaginn, 14. mars, og verði verkbann samþykkt þar mun það taka gildi klukkan eina mínútu yfir miðnætti föstudaginn 22. mars, á sama tíma og verkfalli VR er ætlað að hefjast.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert