Aldrei gerður ráðningarsamningur við Dag

Dagur B. Eggertsson, fyrrverandi borgarstjóri.
Dagur B. Eggertsson, fyrrverandi borgarstjóri. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Dagur B. Eggertsson, formaður borg­ar­ráðs og fyrrverandi borgarstjóri, var án ráðningarsamnings allan sinn tíma sem borgarstjóri. Aldrei var gerður ráðningarsamningur við hann heldur einungis gert svokallað ráðningarbréf.

Hildur Björnsdóttir, borg­ar­full­trúi og odd­viti Sjálf­stæðis­flokks­ins í borg­ar­stjórn Reykja­vík­ur, vakti athygli á málinu. 

Sérkennilegar skýringar

„Forsaga málsins er sú að í upphafi kjörtímabils kalla ég eftir afriti af ráðningarsamningi borgarstjóra, sem þá var Dagur B. Eggertsson. Þá var fátt um svör og ég ítrekaði beiðnina,“ segir Hildur.

„Eftir langa mæðu fékk ég loks afrit af ráðningarbréfi sem gert var við hann á kjörtímabilinu á undan og fékk þau svör að það ætti að gilda áfram.“

Hún segir skýringarnar hafa verið sérkennilegar, enda hljóti ný borgarstjórn að gera nýjan samning við borgarstjóra.

Í 2. mgr. 54. gr. sveita­stjórn­ar­laga nr. 138/​2011 seg­ir að sveit­ar­stjórn skuli gera skrif­leg­an ráðning­ar­samn­ing við fram­kvæmda­stjóra þar sem starfs­kjör hans eru ákveðin.

Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík.
Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. mbl.is/Sigurður Bogi

Birtingarmynd af mörgu sem gengur á í kerfinu

„Svo tek ég eftir þegar nýr borgarstjóri tekur við að þá er svokallað ráðningarbréf lagt fyrir okkur í borgarráði, ekki til samþykktar.“

Í kjölfarið gerir Hildur athugasemd við það og kallar eftir því að ráðningarsamningur sé gerður. 

„Stjórnsýslan er að minnsta kosti verulega ámælisverð og kannski birtingarmynd af mörgu öðru sem gengur á í borgarkerfinu,“ segir Hildur og bætir við að sú vinna hafi verið viðhöfð að embættismenn semdu við borgarstjóra um laun. Það sé mjög öfugsnúið og ekki í samræmi við lög. 

Eftir situr einnig spurningin um hvaða réttindi fyrrverandi borgarstjóri hefur varðandi kaup og kjör og annað, bætir Hildur við.

Ekki verið gerður ráðningarsamningur í mörg ár

Á borgarstjórnarfundi í gær var ráðningarsamningur núverandi borgarstjóra lagður fram til samþykktar.

Þór­dís Lóa Þór­halls­dótt­ir, for­seti borg­ar­stjórn­ar, lagði samninginn fram og gerði grein fyrir því að hann væri kunnuglegur en engar breytingar hafa verið gerðar á samningnum síðan Jón Gnarr var borgarstjóri. Hann sat í borgarstjórastól til 2014.

Á fundinum benti Hildur á að upprunalega hefði staðið til að leggja einungis fram svokallað ráðningarbréf til upplýsingar. Sjálfstæðismenn hefðu þá bent á að það væri ekki í samræmi við sveitarstjórnarlög.

Þórdís Lóa sagði ábendingu Hildar vera rétta og að ekki hefði verið gerður samningur um margra ára skeið.

Laun borg­ar­stjóra Reykja­vík­ur eru 2.477.850 krónur á mánuði. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert