Steinunn Ólína býður sig fram til forseta

Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir vill verða forseti.
Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir vill verða forseti. Ljósmynd/Þjóðleikhúsið

Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir leikkona hefur ákveðið að gefa kost á sér í embætti forseta Íslands. 

Þetta kemur fram í tilkynningu sem hún sendi á fjölmiðla. 

Steinunn hafði á dögunum greint frá því að hún myndi fara fram ef Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra myndi bjóða sig fram til forseta. 

„Það geri ég vegna þess að mig langar að gera gagn og vegna þess að þið hafið hvöttuð mig til þess. Ég heyri að ykkur er alvara og það snertir mig djúpt. Þið þekkið mig. Ég þekki ykkur. Ég hef mætt ykkur á götu, í vegasjoppum, á AA fundum, í leiklistinni og í sundi,“ segir meðal annar í tilkynningu hennar. 

Segir mikið í húfi

Hægt er að lesa restina af tilkynningunni hér:

„Þið stöppuðu í mig stálinu þegar ég var sorgmædd og einmana og þið kennduð mér líka að varðveita eldinn, elska heitt og að ekkert væri ómögulegt. Það er mikið í húfi, því það skiptir máli hver gegnir embætti forseta Íslands.

Forseti er í forsvari fyrir þjóðina á ögurstundum, þegar hún mætir sem fulltrúi hennar til að sýna – að okkur má aldrei standa á sama. Forseti þarf því að vera víðsýnn og fordómalaus og standa með öllu fólki sem hér býr – í blíðu og stríðu.

Þessar forsetakosningar sýna að við verðum að eiga meira en samtal um stjórnarskrá okkar. Breytingar á henni hafa nú verið til umræðu í heilan mannsaldur. Langlundargeð okkar er sannarlega á heimsmælikvarða.

Þjóðin á heimtingu að því að á hana sé hlustað. Það er þingsins að búa svo um hnútana að þar sé ávallt verið að vinna að sameiginlegum hagsmunum fólksins í landinu svo forseti þurfi helst aldrei að skerast í leikinn.

Á Íslandi býr framúrskarandi fólk sem við getum verið stolt af. En við þurfum að efla fleiri til dáða. Við eigum vanda valið á vinum og mynda tengsl sem eru okkur til framdráttar sem þjóð.

Á Íslandi býr líka fólk sem aldrei hefur fengið að njóta sín. Það er sameiginlegt verkefni að bæta þeirra stöðu svo allir íbúar landsins geti dafnað og blómstrað.

Ég lofa, verði ég forseti, að fylgjast vel með og sinna þessu stóra verkefni eftir bestu getu, ekki einu umfram annað, og inna embættisverkin af hendi af áhuga, samviskusemi og alúð.

Fyrir mér er það brýnt að við sameinumst nú um að byggja upp réttlátt og heilbrigt samfélag til framtíðar, fyrir okkur sjálf – en líka fyrir öll þau börn sem hér munu fæðast eftir okkar daga. Með því þökkum við því fólki sem byggði þetta land með sínu viti og striti. Forfeðrum og formæðrum sem gerðu okkur kleift að búa í friðsælu og fallegu landi.

Kannski er mér ætlað að fylla stærri skó í lífinu? Kannski ekki? Hvernig sem fer, þá verð ég söm eftir.

Ég mun nú láta á það reyna, hvort þið teljið mig þess verða að gegna embætti forseta Íslands. Með þátttöku í forsetakosningum velur fólk sinn forseta í trúnaði við sína samvisku.

Ég hef opnað fyrir undirskriftalista meðmælenda á island.is og bið þau sem vilja styðja mig að sýna það í verki svo kjörgeng geti talist, því safna þarf atkvæðum í öllum landsfjórðungum.
Það er stutt til kosninga og ég bið ykkur, ef þið hafið trú á mér, að slást í hópinn og biðla til annarra að styðja mig sömuleiðis.

Nú er vor í lofti, leyfum okkur að vera bjartsýn!

Verði mér treyst til að taka þetta embætti að mér heiti ég heilindum við ykkur og það sem okkur ætti að vera kærast: Landið okkar, Ísland.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert