Býður sig fram ef Katrín bætist við í slaginn

Steinunn Ólína segir að ekki sé hægt að treysta Katrínu …
Steinunn Ólína segir að ekki sé hægt að treysta Katrínu fyrir embætti forseta Íslands. Samsett mynd

Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir leikkona ætlar bjóða sig fram til embættis forseta Íslands ef Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra ákveður að gefa kost á sér til sama embættis.

Frá þessu greinir Steinunn Ólína á Facebook-síðu sinni. Í lok mars ritaði hún grein á Vísi þar sem hún greindi frá því að hún væri alvarlega að íhuga að gefa kost á sér til embættis forseta.

„Ég er ekki að bíða eftir rétta staðnum eða réttu stundinni til að tilkynna framboð. Ég er hinsvegar að bíða eftir því hvort satt sé að sitjandi forsætisráðherra ætli að bjóða sig fram til embættis forseta Íslands. Geri hún það, þá býð ég mig fram. Það er loforð,“ skrifar Steinunn Ólína.

Katrín hefur ekki úti­lokað fram­boð. Mbl.is ræddi við framá­menn í Vinstri græn­um í síðustu viku. Þeir sögðu hana íhuga málið.

Myndi sýna þjóðinni óvirðingu

Steinunn Ólína segist ekki treysta Katrínu fyrir embætti forseta Íslands. Þá myndi Katrín sýna þjóðinni óvirðingu með því að gefa kost á sér.

„Mér fyndist það bera vott um oflæti og að auki fyndist mér hún með því sýna þingi, þjóð og öðrum frambjóðendum óvirðingu og það get ég ekki sætt mig við.

Baráttan um Ísland snýst aðallega um íslenska náttúru og auðlindirnar sem eiga að vera sameign þjóðarinnar. Það fjöregg fengum við í arf og okkur ber að skila því heilu til næstu kynslóða. Nú vegur þyngst að ég treysti ekki Katrínu Jakobsdóttur, að fenginni reynslu, til að gæta þessa fjöreggs okkar. Það er þyngra en tárum taki,“ skrifar Steinunn Ólína.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert