Nefndarfundum aflýst: „Engin ríkisstjórn í reynd starfandi í landinu“

Þorbjörg segir viljandi misskilning hjá ríkisstjórninni að það geti dögum …
Þorbjörg segir viljandi misskilning hjá ríkisstjórninni að það geti dögum sama verið á huldu hvort raunveruleg stjórn sé í landinu. Samsett mynd/Eggert Jóhannesson/Ómar Óskarsson

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, þingkona Viðreisnar, segir ekkert annað hafa verið í stöðunni en að slíta þingfundi á innan við 90 sekúndum enda galið að halda úti dagskrá á meðan ekkert liggi fyrir um áframhaldandi ríkisstjórnarsamstarf í kjölfar afsagnar Katrínar Jakobsdóttur sem forsætisráðherra.

„Það var auðvitað ekkert annað hægt og í fyrsta sinn sem glitti í mann sem ekki er á lokastigum meðvirkni,“ sagði Þorbjörg í færslu á Facebook-reikningi sínum og vísaði þar til Birgis Ármannssonar, forseta Alþingis.

Hún segir það viljandi misskilning hjá ríkisstjórninni að það geti dögum sama verið á huldu hvort raunveruleg stjórn sé í landinu.

„Enginn þingfundur verður í dag, öllum fundum hjá nefndum þingsins hefur verið aflýst á morgun. Og engin ríkisstjórn í reynd starfandi í landinu. Á meðan að allur þessi tími fer í stólaleik er ekki verið að vinna að hag almennings.“

Hér fyrir neðan má lesa færslu Þorbjargar í heild sinni.



mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert