Halla Hrund nýtur mests stuðnings í nýrri könnun

Halla Hrund Logadóttir.
Halla Hrund Logadóttir.

Halla Hrund Logadóttir mælist með mest fylgi í nýjum Þjóðarpúlsi Gallup, sem Rúv hefur birt.

Fram kemur að 36% segjast myndu kjósa hana, 23% Katrínu Jakobsdóttur og 19% Baldur Þórhallsson.

Katrín Jakobsdóttir kemur næst í könnuninni.
Katrín Jakobsdóttir kemur næst í könnuninni. mbl.is/María

Þá segir, að Jón Gnarr fengi atkvæði rösklega tíu prósenta kjósenda. 

Baldur Þórhallsson.
Baldur Þórhallsson. mbl.is/María

Aðrir frambjóðendur mælast allir með innan við tíu prósenta fylgi. Halla Tómasdóttir fengi fjögur prósent atkvæða, Arnar Þór Jónsson þrjú prósent og Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir tvö prósent.

Enginn annar frambjóðandi næði eins prósents fylgi, að því er Rúv greinir frá. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert