Skilaboðin til lögreglumanna „ömurleg“

Landssamband lögreglumanna segir álag á einstaka lögreglumenn mun aukast mikið …
Landssamband lögreglumanna segir álag á einstaka lögreglumenn mun aukast mikið með niðurskurði til löggæslumála. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Stjórn Landssambands lögreglumanna mótmælir harðlega fyrirætlunum stjórnvalda um niðurskurð til löggæslumála sem boðaður er í fjármálaáætlun 2025-2029. 

Hvetur sambandið stjórnvöld til að gera betur, falla frá boðuðum niðurskurði til málaflokksins og bæta úr húsnæðismálum og starfsaðstöðu lögreglunnar á Íslandi.

Segir í ályktun sambandsins ljóst sé að boðuð skerðing á fjárframlögum til málaflokks löggæslu gerir lögreglunni erfitt fyrir að annast lögbundin verkefni sín auk þess sem álag á einstaka lögreglumenn mun aukast mikið.

Íbúum fjölgi og lögreglumönnum fækki

Löggæsla sé ein af grunnstoðum samfélagsins Það sé staðreynd að hlutfallslega hafi lögreglumönnum fækkað mikið undanfarna áratugi í samanburði við fjölgun íbúa og ferðamanna á sama tíma.

Verkefni lögreglunnar hafi á þessum tíma orðið bæði flóknari og mannaflsfrekari en stjórnvöld telji engu að síður ástæðu til að skera niður í stað þess að bæta við.

„Slík skilaboð yfirvalda til lögreglumanna eru ömurleg á sama tíma og stéttin á í kjarasamningsviðræðum við samninganefnd ríkisins.

Að mati Landssambands lögreglumanna eru það draumórar að löggæsla og þjónusta muni ekki skerðast nái fyrirætlanir sem fjármálaáætlun ber með sér fram að ganga. Sífelldur niðurskurður til löggæslu getur ekki annað en endað illa fyrir samfélagið allt.“

Ófremdarástand í húsnæðismálum

Segir einnig í ályktuninni að lögreglumenn harmi stöðu sem uppi sé í húsnæðismálum lögreglu en um langa hríð hafi verið ófremdarástand í húsnæðismálum lögreglu og brýnt að tekið verði á því af festu. 

Nýverið hafi áformum um nýtt húsnæði viðbragðsaðila á höfuðborgarsvæðinu verið frestað sem séu mikil vonbrigði fyrir lögreglumenn þar sem starfsemi á höfuðborgarsvæðinu, starfsemi stjórnstöðvar almannavarna og fjarskiptamiðstöðvar lögreglunnar, búi við óviðunandi húsnæðiskost.

Þá liggi sömuleiðis fyrir að heilt lögreglulið á Suðurnesjum hefur verið í miklum vandræðum með húsnæðismál um alllanga hríð vegna mygluskemmda á lögreglustöð og að húsnæðismál sé illa stödd á Vestfjörðum og Suðurlandi.

Með boðuðum niðurskurði verður ekki séð að húsnæðisvandi lögreglu verið leystur á næstu árum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka