Beauty tips

Beauty tips er falinn Facebook hópur sem eingöngu er ætlaður konum. Þúsundir íslenskra kvenna taka þar daglega þátt í umræðum um allt milli himins og jarðar og kemst hópurinn reglulega í fréttirnar. Í maí 2015 hófu konur á Beauty tips hreyfingu gegn kynferðisofbeldi undir myllumerkinu #þöggun þar sem þær vekja m.a. máls á því að skömmin sé gerandans en ekki fórnarlambsins og að fórnarlamb eigi alltaf að geta greint frá ofbeldinu.
RSS