Skemmdarverk á kosningaskrifstofu Frjálslyndra í Skagafirði

Skemmdarverk voru unnin á kosningamiðstöð Frjálslyndra og óháðra á Sauðárkróki í nótt. Fram kemur á heimasíðu Frjálslynda flokksins, að skilti hafi verið rifin niður og þau eyðilögð. Málið verður kært til lögreglu.

Kosningamiðstöðin er við Aðalgötu, en þar eru kosningamiðstöðvar allra framboða í Skagafirði. Segir á heimasíði Frjálslynda flokksins að kosningamiðstöð Frjálslyndra og óháðra sé sú eina, sem orðið hafi fyrir barðinu á skrílnum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert