Sigríður Anna Þórðardóttir hyggst hætta á þingi

Sigríður Anna Þórðardóttir
Sigríður Anna Þórðardóttir

Sigríður Anna Þórðardóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi ráðherra, hyggst ekki gefa kost á sér til áframhaldandi þingsetu, en hún greindi frá þessu á aðalfundi kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi sem fram fór í kvöld. Þetta kom fram í kvöldfréttum Sjónvarps.

Þá hyggst Jón Sigurðsson, formaður Framsóknarflokksins, bjóða sig fram í Reykjavík í komandi kosningum. Jón tilkynnti um ákvörðun sína á fundi Grand hóteli í Reykjavík í kvöld.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert