Harma ákvörðun Valdimars um úrsögn úr Samfylkingu

Ungir jafnaðarmenn, ungliðahreyfing Samfylkingarinnar, hafa sent frá sér tilkynningu þar sem þeir harma þá ákvörðun Valdimars Leó Friðrikssonar, þingmanns flokksins í Suðvesturkjördæmi, að segja skilið við flokkinn og standa óháður á þingi.

Beina Ungir jafnaðarmenn því til allra þeirra rúmlega 70 einstaklinga, sem gáfu kost á sér í prófkjörum flokksins undanfarnar vikur, að virða niðurstöður þeirra og val flokksfélaga og stuðningsmanna Samfylkingarinnar.

„Frambjóðendunum er gáfu kost á sér samþykktu um leið þær reglur og fyrirkomulag sem viðhaft var við val á forystusætum flokksins í öllum kjördæmum landsins. Kemur á óvart að forystumaður í íþróttastarfi skuli ekki kunna að taka tapi betur en raun ber vitni og sjái ekki sóma sinn í því að láta af þingmennsku fyrst hann telji sig ekki eiga lengur samleið með flokknum," segir í tilkynningunni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert