Fulltrúar flokkanna gera grein fyrir afstöðu til umhverfismála

mbl.is/Júlíus

Opinn umræðufundur stendur nú yfir í Hafnarfjarðarleikhúsinu á vegum samtakanna Framtíðarlandsins sem hafa verið nokkuð áberandi í þjóðfélagsumræðunni á síðustu mánuðum. Á myndinni má sjá Guðjón Ólaf Jónsson, Illuga Gunnarsson, Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur, Kolbrúnu Halldórsdóttur, Kristinn H. Gunnarsson og Ómar Ragnarsson sem á fundinum lýstu m.a. afstöðu flokka sinna til stóriðju og umhverfismála almennt.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert