Geir með illkynja æxli í vélinda - kosið í maí

Geir H. Haarde, forsætisráðherra ávarpaði fréttamenn í Valhöll í hádeginu stækka

Geir H. Haarde, forsætisráðherra ávarpaði fréttamenn í Valhöll í hádeginu mbl.is/Ómar

Geir H. Haarde, forsætisráðherra, ætlar ekki að sækjast eftir endurkjöri sem formaður Sjálfstæðisflokksins en hann greindist nýverið með illkynja æxli í vélinda. Sjálfstæðisflokkurinn vill að boðað verði til kosninga þann 9. maí næstkomandi. Landsfundi flokksins verður frestað þar til í lok mars.

Þetta kom fram í ávarpi Geirs, sem hann las fyrir fréttamenn í Valhöll en þar stendur yfir miðstjórnarfundur Sjálfstæðisflokksins. Geir gaf ekki kost á spurningum fréttamanna að loknu ávarpi sínu.

Að sögn Geirs greindist hann með lítið æxli í vélinda við reglubundna læknisskoðun fyrir skömmu. Síðastliðinn þriðjudag var honum greint frá því að rannsókn hafi leitt í ljós að æxlið er illkynja. Hafa læknar lagt það til að hann fari í aðgerð til þess að fjarlægja meinið. „Slíka aðgerð er ekki hægt að gera hér á landi og verður hún því framkvæmd erlendis um eða skömmu eftir næstu mánaðamót. Ég er bjartsýnn á að sigrast á þessum veikindum og er sagt að batahorfur séu ágætar og ég geti vænst þess að ná fullri starfsorku á næstu mánuðum hið minnsta. Hins vegar er aldrei hægt að útiloka að mál sem þessi geti þróast til verri vegar þegar til lengri tíma er litið," segir Geir.

Í þeirrar óvissu sem leiðir af eðli þessa meins hefur Geir ákveðið að sækjast ekki eftir endurkjöri sem formaður Sjálfstæðisflokksins á komandi landsfundi.  „Ég hef þegar greint samherjum mínum í þingflokki og miðstjórn flokksins sem funda hér í næsta herbergi frá þessu," sagði hann.

„Það gerir mína ákvörðun auðveldari að Sjálfstæðisflokkurinn á úr breiðum hópi frambærilegra forystumanna að velja og fyrir hönd flokksins kvíði ég þess vegna ekki framtíðinni. Ég vil jafnframt greina frá því að þingflokkur Sjálfstæðisflokksins og miðstjórn hans vilja að gengið verði til alþingiskosninga laugardaginn 9. maí næstkomandi. Ég hef þegar rætt við formann samstarfsflokksins um ofangreinda dagsetningu og munum við ræða nánar saman um helgina eftir að hún er komin heim til landsins.

Geir segist leggja áherslu á að ríkisstjórnin vinni áfram ótrauð saman að þeim verkefnum sem hennar bíða fram að kosningum til bjargar heimilum og fyrirtækjum í landinu. „Ég mun leggja allt kapp á það að samstarfið við aðra flokka að undirbúningi að komandi þingkosningum muni ekki raska þeirri efnahagsáætlun sem við vinnum eftir í samstarfi við Alþjóða gjaldeyrissjóðinn. Þar eru miklir hagsmunir í húfi eins og ég hef margítrekað lagt áherslu á. 

Í ljósi þess að allar líkur eru á að gengið verði til alþingiskosninga strax í vor þá hefur miðstjórn Sjálfstæðisflokksins ákveðið að fresta landsfundi flokksins og verður hann haldinn dagana 26. til 29. mars næstkomandi. Á þeim landsfundi mun Sjálfstæðisflokkurinn móta stefnu sína fyrir kosningar og velja sér nýjan formann sem mun leiða flokkinn í næstu kosningum," sagði Geir við fréttamenn nú í hádeginu.

Geir H. Haarde, forsætisráðherra, mætir á miðstjórnarfundinn

Geir H. Haarde, forsætisráðherra, mætir á miðstjórnarfundinn mbl.is/Ómar

PDF-skrá Yfirlýsing Geirs H. Haarde
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent, Kosningar — Fleiri fréttir

Laugardaginn 18. desember

Fimmtudaginn 2. desember

Miðvikudaginn 1. desember

Þriðjudaginn 30. nóvember

Fimmtudaginn 25. nóvember

Mánudaginn 22. nóvember

Laugardaginn 20. nóvember

Miðvikudaginn 17. nóvember

Föstudaginn 12. nóvember

Miðvikudaginn 10. nóvember

Miðvikudaginn 3. nóvember

Þriðjudaginn 2. nóvember

Mánudaginn 25. október

Fimmtudaginn 21. október

Þriðjudaginn 19. október

Mánudaginn 18. október

Sunnudaginn 17. október

Laugardaginn 16. október

Föstudaginn 15. október

Fimmtudaginn 14. október

Mánudaginn 11. október

Laugardaginn 9. október

Föstudaginn 8. október

Fimmtudaginn 7. október

Föstudaginn 1. október

Fimmtudaginn 23. september

Miðvikudaginn 22. september

Þriðjudaginn 21. september

Miðvikudaginn 8. september

Miðvikudaginn 1. september

Mánudaginn 30. ágúst

Miðvikudaginn 25. ágúst

Þriðjudaginn 24. ágúst


finnur.is