Bjartsýn á framhaldið

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir og Steingrímur J. Sigfússon tala við blaðamenn …
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir og Steingrímur J. Sigfússon tala við blaðamenn í Alþingishúsinu í kvöld. mbl.is/Árni Sæberg

Stjórnarmyndunarviðræður Samfylkingarinnar og Vinstrihreyfingarinnar-græns framboðs, munu halda áfram í fyrramálið en í kvöld fer fram vinna í málefnahópum. Hlé var gert á fundi flokkanna í Alþingishúsinu undir kvöld. Formenn flokkanna sögðust bjartsýnir á framhaldið.

„Þegar málefnavinnunni er lokið munum við ræða verkaskiptinguna milli flokkanna,“ sagði Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, en átti ekki von á að niðurstaða fengist fyrr en á morgun. Nefndi hún m.a. að ráðast þyrfti í miklar aðgerðir til að bæta hag heimilanna og fyrirtækja og að fara þyrfti fram einhvers konar siðbót. Í því sambandi nefndi hún m.a. að breyta þyrfti lögum um ráðherraábyrgð, setja siðareglur og tryggja faglega stjórn Seðlabankans. 

Steingrímur J. Sigfússon, formaður VG, tók í sama streng og áréttaði að þingflokkar beggja flokkanna ættu aðkomu að málinu. „Við nálgumst þetta þannig að draga fram mikilvægustu atriðin og hafa þetta fá, skýr og mikilvæg atriði sem mest liggur á að vinna og vera ekki að flækja málin með öðru,“ sagði Steingrímur.

Ljóst er orðið að Jóhanna Sigurðardóttir muni veita ríkisstjórninni forystu en að öðru leyti vildu formennirnir ekkert gefa uppi um önnur ráðherraembætti.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert