Árni Árnason sækist eftir 4. sætinu

Árni Árnason
Árni Árnason

Árni Árnason blaðamaður úr Reykjanesbæ, gefur kost á sér í 4.sætið í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi, sem fram fer 14.mars nk.

Árni hefur í fimmtán ár verið virkur þátttakandi innan Sjálfstæðisflokksins. Hann var varasveitarstjórnarmaður í Garði um árabil og átti sæti í stjórn Sjálfstæðisfélagsins í Garði. Árni fluttist til Reykjanesbæjar 2004 og var formaður Heimis, félag ungra sjálfstæðismanna í Reykjanesbæ í 2 ár. Þá var Árni kosningastjóri Sjálfstæðisflokksins á Suðurnesjum árið 2007.

Árni situr í umhverfis- og skipulagsráði Reykjanesbæjar, í stjórn Fasteigna Reykjanesbæjar, er í stjórn Sjálfstæðisfélagsins Keflvíkings og í stjórn fulltrúaráðs Sjálfstæðisfélaganna í Reykjanesbæ, að því er segir í tilkynningu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert