Dregur framboð sitt til baka vegna kynjakvóta

Ragnar Thorarensen
Ragnar Thorarensen

„Það er að mínu mati ekki lýðræðislegt að gefa ekki kjósendum fullan rétt til að kjósa þá sem þeir vilja í tiltekin sæti,“ segir Ragnar Thorarensen, samfylkingarmaður sem er hættur við að taka þátt í prófkjöri Samfylkingarinnar í Norðausturkjördæmi. Ragnar hafði gefið kost á sér í 3. sætið hjá Samfylkingunni í NA-kjördæmi fyrir komandi alþingiskosningar.

Í yfirlýsingu sem Ragnar sendi frá sér segir að hann hafi alla tíð verið jafnréttissinnaður. Spurningin sé hvernig menn nálgist jafnrétti.

„Í gær á kjördæmisþingi Samfylkingarinnar í Norðausturkjördæmi felldu menn eðlilega þá tillögu að tvö efstu sæti á framboðslista Samfylkingar yrðu skipuð konu og karli. Eftir tveimur efstu sætunum sækjast þrír karlmenn. Þótt það sé afar mikilvægt að konur taki meira virkan þátt í pólitík þá verður það að vera á jöfnum og lýðræðislegum forsendum. Það er að mínu mati ekki lýðræðislegt að gefa ekki kjósendum fullan rétt til að kjósa þá sem þeir vilja í tiltekin sæti. Eftir að tillagan hafði verið felld gengu konurnar út af fundinum en sneru aftur þegar búið var að gera sárabætur sem fólust í því að þær fái þá þriðja sætið örugglega og e.t.v. það fjórða. Sem sagt, ný tillaga gekk út á það að hvort kyn mætti ekki skipa nema tvö sæti í röð á listanum. Þetta túlka sumir sem jafnrétti og lýðræði. Undirritaður ætlaði að gefa kost á sér í 3ja sætið en úr því að þessar reglur hafa verið samþykktar þá sér hann engan tilgang með því og dregur því framboð sitt tilbaka,“ segir í yfirlýsingu Ragnars Thorarensen.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert