Fleiri geta kosið eftir breytingar á kosningalögum

Kjörkassar í Ráðhúsinu
Kjörkassar í Ráðhúsinu Þorvaldur Örn Kristmundsson

Breyting á lögum um kosningar til Alþingis sem tók gildi í dag gerir íslenskum ríkisborgurum, sem hafa verið búsettir erlendis í meira en átta ár og höfðu ekki sótt um að verða teknir á kjörskrá fyrir 1. desember sl., kleift að kjósa í alþingiskosningunum 25. apríl nk.

Sæki þeir um til Þjóðskrár í síðasta lagi 25. mars nk. geta þeir kosið í kosningunum í vor ef umsókn þeirra reynist fullnægjandi. Ef umsókn berst Þjóðskrá eftir að fresturinn rennur út verður viðkomandi ekki tekinn á kjörskrá í vor.
 
Þeir sem sendu umsókn til Þjóðskrár eftir 1. desember sl. og fram til dagsins í dag þurfa ekki að sækja sérstaklega um aftur. Þeir verða nú teknir á kjörskrá samkvæmt lagabreytingunni og mun Þjóðskrá tilkynna viðkomandi það sérstaklega. Umsóknareyðublöð er að finna á vef Þjóðskrár.


mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert