Engin hagsmunatengsl

Ríkisstjórn Íslands
Ríkisstjórn Íslands mbl.is/Ómar

Aðeins einn ráðherra í ríkisstjórn Íslands tekur að sér launuð störf annað en ráðherrastarfið. Katrín Jakobsdóttir, menntamálaráðherra þiggur laun fyrir stöku námskeið eða fyrirlestra um bókmenntir. Þetta má lesa í upplýsingum sem birtar hafa verið um hagsmunatengsl ráðherra og trúnaðarstörf.

Með ákvörðun ríkisstjórnar frá 17. mars sl. var ákveðið að ráðherrar í ríkisstjórn Íslands skyldu gera almenningi grein fyrir fjárhagslegum hagsmunum sínum og trúnaðarstörfum sem þeir gegna í samræmi við reglur forsætisnefndar Alþingis um skráningu á fjárhagslegum hagsmunum alþingismanna og trúnaðarstörfum utan þings frá 16. mars 2009. Óskaði forsætisráðherra í framhaldi eftir því að ráðherrar í ríkisstjórn Íslands sendu forsætisráðuneytinu upplýsingar um fjárhagslega hagsmuni sína og trúnaðarstörf sem þeir gegna.

Svör hafa nú borist forsætisráðuneytinu frá öllum ráðherrum í ríkisstjórn Íslands.

Eins og áður segir tekur einn ráðherra, Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra að sér stöku námskeið eða fyrirlestra um bókmenntir.

Enginn ráðherranna þiggur fjárhagslegan stuðning, gjafir eða boðsferðir og enginn ráðherranna hefur fengið eftirgjöf skulda. Þó nefnir Gylfi Magnússon viðskiptaráðherra að hann hefur skrifstofuaðstöðu í Háskóla Íslands.

Tveir ráðherrar hafa gert samkomulag við vinnuveitendur sína, þau Gylfi Magnússon, viðskiptaráðherra og Ragna Árnadóttir, dóms- og kirkjumálaráðherra. Bæði eru í launalausu leyfi meðan þau gegna ráðherradómi.

Fjórir ráðherrar gegna stjórnarsetu eða öðrum trúnaðarstörfum fyrir hagsmunasamtök eða opinberar stofnanir.

  • Ögmundur Jónasson hefur gegnt formennsku í BSRB frá árinu 1988 en frá því hann tók sæti á Alþingi vorið 1995 hefur hann ekki þegið laun frá BSRB að því undanskildu er hann þrívegis hefur tekið stutt launalaus leyfi frá Alþingi. Þegar Ögmundur varð heilbrigðisráðherra tók hann sér um leið leyfi frá störfum fyrir BSRB.
  • Kolbrún Halldórsdóttir umhverfisráðherra á sæti í þjóðleikhúsráði en gegnir ekki þeirri stöðu meðan hún gegnir ráðherraembætti.
  • Össur Skarphéðinsson iðnaðar- og utanríkisráðherra gegnir varaformennsku í styrktarsjóði hjartveikra barna.
  • Gylfi Magnússon viðskiptaráðherra er í leyfi frá ýmsum stjórnunarstörfum sem tengjast starfi hans fyrir Háskóla Íslands, sem formaður stjórnar styrktarsjóða í vörslu skólans, sem formaður Málræktarsjóðs og í ýmsum nefndum á vegum viðskiptafræðideildar skólans. Gylfi segist ekki þiggja laun eða önnur fríðindi meðan hann er í leyfi. Þá er Gylfi formaður stjórnar Norðurstígs ehf. sem er félag í eigu fjölskyldu eiginkonu hans. Félagið á og rekur fasteign við samnefnda götu. Gylfi segir stjórnarformennskuna launalausa og án fríðinda. Þá er Gylfi í launalausu leyfi sem formaður Samkeppniseftirlitsins og sem varaformaður í yfirfasteignamatsnefnd.
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert