Þátttökugjald 20 þúsund hjá Samfylkingunni

Samfylkingin
Samfylkingin

Samfylkingin á Seltjarnarnesi efnir til forvals 30. janúar næstkomandi um röðun á framboðslista í sveitarstjórnarkosningunum 29. maí 2010. Stefnt er að sameiginlegri kynningu á frambjóðendum í dreifiriti og á sérstökum kynningarfundi. Þátttökugjald er kr. 20.000, að því er segir í tilkynningu. Nánari reglur um forvalið verða kynntar í janúar.

Framboð berist kjörstjórn fyrir kl. 20 þann 15. janúar með meðmælum 10 stuðningsmanna Samfylkingarinnar. Rétt til framboðs eiga félagar í Samfylkingunni búsettir á Seltjarnarnesi sem hafa náð 18 ára aldri á prófkjörsdegi.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert