Rúnar Bragi stefnir á fjórða sætið í Mosfellsbæ

Rúnar Bragi Gunnlaugsson
Rúnar Bragi Gunnlaugsson

Rúnar Bragi Guðlaugsson, innkaupastjóri Fríhafnarinnar, hefur ákveðið að gefa kost á sér í 4. sæti í prófkjöri sjálfstæðismanna í Mosfellsbæ. Rúnar situr í stjórn sjálfstæðisfélagsins í Mosfellsbæ og hefur verið sjálfboðaliði hjá Aftureldingu, samkvæmt fréttatilkynningu.

Rúnar Bragi er með diploma frá Endurmennt Háskóla Íslands í rekstrar- og viðskiptafræði og markaðs- og útflutningsfræði.

Rúnar er 37 ára, giftur Bylgju Báru Bragadóttur og eiga þau saman 2 börn, Braga Þór 15 ára og Birtu Rut 8 ára.


mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert