Prófkjör í Garðabæ og Mosfellsbæ

Sjálfstæðisflokkurinn er með prófkjör í dag á Álftanesi, Garðabæ, Grindavík og Mosfellsbæ þar sem raðað verður á framboðslista fyrir sveitarstjórnakosningarnar í maí.

Á Álftanesi hefst kjörfundur klukkan 10 og stendur til klukkan 18. Kosið er í  Vallarhúsinu við Breiðumýri. Tíu bjóða sig fram í prófkjörinu.

Í Garðabæ verður kosið í félagsheimili Sjálfstæðisfélagsins í Garðabæ, frá kl. 9 til kl.18.  Þar keppast tólf frambjóðendur um sæti á framboðslista flokksins í komandi sveitarstjórnarkosningum í vor. 

Í Mosfellsbæ gefa 15 kost á sér í prófkjöri flokksins. Kosið verður í Lágafellsskóla og opnar kjörstaður kl. 10 en kosningu lýkur kl. 19.

Í Grindavík hafa þrettán tilkynnt þátttöku.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert